Þegar sótt er um vottun er athugað á hvaða sviði fyrirtækið starfar. Ef vottunarstofan er ekki með starfsmann eða undirvertaka sem hefur þekkingu á starfseminni er slíkur aðili fundinn hér innanlands eða erlendis. Þegar kemur að skipulagningu úttektar í fyrirtækinu er þess gætt að engir hagsmunaárekstrar séu til staðar og getur fyrirtækið óskað eftir breytingu á úttektarhópnum.



















































