Vottun hf.

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir
Fréttir af starfsemi Vottunar hf.

Stækkun umhverfisstjórnunarkerfis Sorpu bs.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Í nóvember á síðasta ári var staðfest vottun á umhverfisstjórnunarkerfi allra endurvinnslustöðva Sorpu bs. ásamt starfsemi Góða hirðisins í Fellsmúla. Áður náði vottunin til móttöku- og flokkunarstöðvar í Gufunesi, urðunarstaðar í Álfsnesi og höfuðstöðvanna við Gylfaflöt 5 í Reykjavík.

Vottaðar endurvinnslustöðvar Sorpu er staðsettar við Sævarhöfða, Ánanaust og Jafnasel í Reykjavík, Dalveg í Kópavogi, Blíðubakka í Mosfellsbæ og Breiðhellu í Hafnarfirði.

 

Vottun umhverfisstjórnunarkerfis IGS ehf.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Alþjóðlega flugþjónustufyrirtækið IGS ehf. hefur fengið umhverfisstjórnunarkerfi sitt vottað í samræmi við ISO 14001 staðalinn en fyrirtækið hefur starfrækt vottað gæðastjórnunarkerfi frá árinu 2008.

IGS var stofnað sem dótturfélag Icelandair Group árið 2001 en flugvallarþjónusta á Íslandi hefur verið hluti af starfsemi Icelandair frá stofnun þess. Vottun umhverfisstjórnunarkerfisins nær til flugvallaþjónustu við flugfélög og farþega á alþjóðlega flugvellinum í Keflavík, þ. á m. innritunar farþega, hleðslu, afhleðslu og þrifa flugvéla, fraktafgreiðslu, veitingaþjónustu og alhliða matarframleiðslu, auk reksturs SAGA biðstofu í flugstöðinni.

 

Stækkun vottaðs gæðastjórunarkerfis Tækniskólans

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins hefur undanfarin misseri unnið að því að innleiða gæðastjórnunarkerfi sitt á fleiri sviðum í starfseminni. Skólinn var stofnaður árið 2008 þegar Iðnskólinn í Reykjavík og Fjöltækniskólinn sameinuðust. Hann er nú stærsti framhaldsskóli landsins og samanstendur af tólf undirskólum.

Þrír undirskólar - Skipstjórnarskólinn, Véltækniskólinn og Endurmenntunarskólinn - hafa verið með vottað gæðastjórnunarkerfi frá árinu 2005 og nú í sumar færðust átta skólar undir hið vottaða kerfi. Þetta eru Byggingatækniskólinn, Fjölmenningarskólinn, Hársnyrtiskólinn, Hönnunar- og handverksskólinn, Raftækniskólinn, Tækniakademían, Tæknimenntaskólinn og Upplýsingatækniskólinn.

Nánar upplýsingar um starfsemi Tækniskólans má finna á www.tskoli.is.

 

 

ARKÍS arkitektar ehf. fá vottun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vottun hf. hefur vottað samræmi gæðastjórnunarkerfis ARKÍS arkitekta ehf. við kröfur ÍST ISO 9001 staðalsins. Nær vottunin til hönnunar- og ráðgjafarþjónustu á sviðum arkitektúrs og skipulags. ARKÍS var stofnað 1997 og eru starfsmenn nú á þriðja tug talsins. Verkefnin spanna öll svið arkitektúrs, skipulags, hönnunar og ráðgjafar og viðskiptavinirnir bæði innlendir og erlendir. Stofan hefur þá sérstöðu að geta boðið upp á heildstæða ráðgjöf fyrir vistvæna byggð og byggingar á öllum stigum hönnunar, þ.e. undirbúnings, skipulags, hönnunar og framkvæmdaeftirlits. Nánari upplýsingar um ARKÍS er að finna á heimasíðunni www.ark.is.

 



Vottuð starfsemi

 

 

Upplýsingar um handhafa
gildra vottorða og umfang
vottana hjá Vottun hf.
fást á skrifstofu félagsins.


Vottun hf. —    NMÍ, Keldnaholti    —    112 Reykjavík    —    sími: 570-7200    —    fax: 522-9111    —    tp: vottun@vottunhf.is    —    kt: 590691-1439