Mennta- og menningarmálaráðuneytið fær vottun

Mánudagur, 21. janúar 2019 00:00 Vefstjóri
Prentvæn útgáfa

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hlaut vottun á jafnlaunakerfi sitt í desember síðastliðnum. Á myndinni hér að neðan sjást Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri taka við vottorði sem staðfestir að jafnlaunakerfi ráðuneytisins uppfyllir kröfur í jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.

Á myndinni eru frá vinstri Stefán Baldursson skrifstofustjóri, Jóna Pálsdóttir jafnréttisráðgjafi, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Emil B. Karlsson úttektarmaður, Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri og Anna María Urbancic rekstrarstjóri.